Um brjóstagjafavikuna

StyrktaraðilarAlþjóðlega brjóstagjafavikan var haldin hátíðleg í fyrsta skipti á Íslandi haustið 2008.

Ísland bættist þar með í hóp yfir 120 ríkja sem halda alþjóðlegu brjóstagjafavikuna hátíðlega. Heimssamtök um brjóstagjöf (World Alliance for Breastfeeding Action – WABA) settu alþjóðlegu brjóstagjafavikuna á fót árið 1992 og hefur hún verið haldin árlega síðan. Í hvert sinn sem vikan er haldin er fjallað um brjóstagjöf út frá ákveðnu þema.

Tilgangurinn með vikunni er að auka þekkingu manna á brjóstagjöf og styðja mæður í brjóstagjöfinni og þar með ýta undir að sem flest börn njóti brjóstagjafar eins lengi og kostur er. Brjóstagjöf hefur fjölmarga kosti fyrir bæði móður og barn. Vitað er að hún hefur forvarnargildi gagnvart mörgum sjúkdómum, bæði til lengri og skemmri tíma litið og því er það allra hagur að ungbörn séu höfð á brjósti. Alþjóða heilbrigðisstofnunin mælir með því að brjóstamjólk sé eina fæða barna, sama hvaðan þau eru úr heiminum, til sex mánaða og síðan með fjölbreyttu og næringarríku fæði til tveggja ára og þar eftir eins lengi og móðir og barn kjósa.

Stefnt er að því að halda vikuna hátíðlega á hverju ári á Íslandi í september. Til þess að minna á mikilvægi brjóstagjafar er stefnt að því að halda málþing, standa fyrir fjöldagjöf og bjóða til kaffispjalls ár hvert.

Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að auka þekkingu á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Boðskapur vikunnar á erindi við Íslendinga jafnt og aðra.

Gleðilega brjóstagjafaviku!