Skipuleggjendur 2011

Brjóstagjafavikan 2011Við erum sex konur sem stöndum að skipulagningu brjóstagjafavikunnar, allar áhugamanneskjur um brjóstagjöf. Við heitum Aðalheiður Atladóttir, Dagný Ósk Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Baldursdóttir, Jenný Lind Tryggvadóttir, Soffía Bæringsdóttir og Sólveig Reynisdóttir.

Viku sem þessa er ekki hægt að halda án halds og trausts og stuðnings annarra og hafa ófáir lagt hönd á plóginn og verður þeim seint fullþakkað.

Vikan var fyrst haldin hátíðleg á Íslandi 2008 og því í fjórða sinn sem vikan er haldin og vonandi er hún búin að festa sig í sessi. Það hefur ávallt verið von okkar og vilji að vekja jákvæða athygli á brjóstagjöf og mikilvægi hennar. Vikan er haldin í tengslum við alþjóðlegu brjóstagjafavikuna sem haldin er hátíðleg í yfir 120 löndum.