Myndataka, fimmtudagurinn 22. september
Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að vekja athygli á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Auk þess að beina sjónum að mikilvægi brjóstagjafar var ákveðið að minna á fegurð brjóstagjafar. Benda á að fegurðin býr í hversdagsleikanum og nándina sem myndast milli móður og barns. Þrátt fyrir að brjóstagjafastundirnar séu ófáar gleymist oft að mynda þær.
Af því tilefni er konum með barn á brjósti boðið að koma í myndatöku. Anna E. Douglas hjá Studio Douglas sér um myndatökuna og gefur alla vinnu sína. Myndirnar verða unnar og sendar til kvennanna á stafrænu formi.
Myndatakan kostar 1000.- og rennur ágóðinn óskiptur til styrktar brjóstagjafavikunnar.
Uppbókað er í myndatökuna
Til baka í Dagskrá 2011