Ljósmyndasýning, þriðjudaginn 20. september
Sjáumst - sýning á verkum eftir Fiann Paul
Ljósmyndasýning í miðbæ Reykjavíkur
Íslenskar konur leggja mikið upp úr heilbrigðisvitund, sem hefur orðið til þess að á Íslandi er ein hæsta tíðni brjóstagjafar í Evrópu. Langflestar íslenskar konur kjósa að hefja brjóstagjöf. Sjáumst undirstrikar fegurðina sem liggur að baki þessari vitund.
Fiann Paul er þekktur sem annar af höfundum “The dialog” verkefninu. Það var ljósmyndasýning af íslenskum börnum sem þöktu vegginn á húsi á mótum Austurstrætis og Lækjargötu í miðbæ Reykjavíkur.
Fiann er einnig þekktur íþróttamaður og keppir fyrir hönd Íslands. Þjálfun hans og keppnisskap hafa gert honum það kleift að slá tvenn heimsmet í að róa yfir Atlantshafið í árabát, frá Afríku til Mið-Ameríku. Það var í fyrsta skipti sem einhver hefur sett heimsmet fyrir Íslands hönd. Fiann undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramót ræðara sem haldið verður á Indlands hafi á næsta ári. Róið verður frá Ástralíu yfir til Afríku.
Sjáumst er liður í að minna okkur á mikilvægi þess að brjóstagjöf sé sýnileg.
Gleðilega brjóstagjafaviku.
Til baka í Dagskrá 2011