Myndataka, mánudaginn 20. september 2010 kl.14:00

Brjóstagjafavikan 2010Setning vikunnar og ljósmyndataka í framhaldi kl.14:00 - 16:00

Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að vekja athygli á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Auk þess að beina sjónum að mikilvægi brjóstagjafar var ákveðið að minna á fegurð brjóstagjafar. Benda á að fegurðin býr í hversdagsleikanum og nándina sem myndast milli móður og barns. Þrátt fyrir að brjóstagjafastundirnar séu ófáar gleymist oft að mynda þær.

Af því tilefni er konum með barn á brjósti boðið að koma í myndatöku. Stefanía Reynis sér um myndatökuna. Myndirnar verða unnar og sendar til kvennanna á stafrænu formi.

Myndatakan kostar 1.000.-
Hafið samband á mynd@brjostagjafavika.org

Til baka í Dagskrá 2010