Skipuleggjendur brjóstagjafavikunnar 2009
Við erum þrjár sem stöndum fyrir skipulagningu vikunnar, allar áhugamanneskjur um brjóstagjöf. Við heitum Dagný Ósk Ásgeirsdóttir, vefverslunareigandi og tveggja barna móðir, Soffía Bæringsdóttir, kennari og einnar stúlku mamma og Ingibjörg Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur og brjóstagjafaráðgjafi. Hólmfríður Gestsdóttir hefur verið okkur til halds og trausts og er aðstoð hennar ómetanleg.
Hugmyndin að því að halda vikuna kveiknaði á fundi um brjóstagjöf vorið 2008 og áður en hendi var veifað var undirbúningur kominn á fullt. Þá stóð Aðalheiður Atladóttir, arkitekt og tveggja stúlku móðir þétt með okkur. Vikan er nú haldin í annað sinn og er vonandi komin til að vera um ókomna tíð.
Svona viku er ekki hægt að halda án trausts og stuðnings annarra og hafa ófáir lagt hönd á plóginn, þeim verður seint full þakkað.
Til baka í Brjóstagjafavikan 2009