Myndataka, mánudaginn 21. september kl.16:00
Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að vekja athygli á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Auk þess að beina sjónum að mikilvægi brjóstagjafar var ákveðið að minna á fegurð brjóstagjafar. Benda á að fegurðin býr í hversdagsleikanum og nándina sem myndast milli móður og barns. Þrátt fyrir að brjóstagjafastundirnar séu ófáar gleymist oft að mynda þær.
Af því tilefni er konum með barn á brjósti boðið að koma í myndatöku. Jóhanna Þorkelsdóttir myndlistarkona og Birna Þorkelsdóttir grafískur hönnuður sjá um myndatökuna. Myndirnar verða unnar og sendar til kvennanna á stafrænu formi.
Myndatakan kostar 1000.- Hafið samband á mynd@brjostagjafavika.org
Til baka í Dagskrá 2009