Fundur brjóstagjafasamtakanna, þriðjudaginn 22. september kl.20:30

Fundur íslensku brjóstagjafasamtakannaFundur íslensku brjóstagjafasamtakanna
Skeifunni 8 (fyrir neðan Mími)

Það er draumur okkar að á Íslandi starfi öflug brjóstagjafasamtök sem sinna málefnum brjóstagjafar af alúð og metnaði og geti veitt konum sem brjóstfæða börn sín áreiðanlegar og aðgengilegar upplýsingar um brjóstagjöf, sem og aðstoðað þegar þörf er á.
Það er okkar von að koma á fót sjálfboðaliðahreyfingu í anda ,,ammehjelp” sem tíðkast víða á Norðurlöndunum og hefur gefið góða raun.
Fundurinn er fyrsta skrefið í að koma ,,ammehjelp” í farveg á Íslandi. Stefnt er að því að skipa í formlegan vinnuhóp fyrir verkefnið.

Allt áhugafólk um brjóstagjöf hjartanlega velkomið.

Til baka í Dagskrá 2009