Fjöldagjöf, föstudaginn 25. september kl.15:00

Reykjavík: Kaffitár í Borgartúni 10

Ísafjörður:

Húsavík: Garðarsbraut 28 (efri hæð)

Fjöldagjöf

Í tilefni alþjóðlegu brjóstagjafavikunnar eru konur hvattar til þess að fjölmenna í fjöldagjöf. Markmiðið með fjöldagjöfinni er að hittast og gefa saman brjóst og vekja þannig athygli á mikilvægi brjóstagjafar. Margar mjólkandi mæður eru tvístígandi varðandi brjóstagjöf sína á almannafæri en saman komnar á einn stað mynda þær stuðning hver við aðra. Fjöldagjöf gerir brjóstagjöf sýnilega og minnir á hve mikilvæg hún er. Skemmtilegt andrúmsloft myndast þegar svo margar konur og börn þeirra eru saman komnar. Eftir fjöldagjöfina sitjum við svo eftir og spjöllum saman.

Við ætlum að koma saman og gefa börnum okkar móðurmjólk á ofangreindum stöðum, jafnframt hvetjum við allar mjólkandi mæður til þess að vera með okkur og gera brjóstagjöf sýnilega.
Ef ekki gefst tækifæri til að mæta á ofangreinda staði er upplagt að setjast inn á næsta kaffihús og gefa brjóst og vera með.

Til baka í Dagskrá 2009