Brjóstagjafavikan 2009

28_
Alþjóðlega brjóstagjafavikan var haldin hátíðleg á Íslandi dagana 21.-27. september 2009. Þetta var í annað sinn sem vikan var haldin formlega á Íslandi. Til þess að minna á mikilvægi brjóstagjafar voru ýmsar uppákomur alla vikuna.

Þemað árið 2009 varr brjóstagjöf fyrstu vikuna. Langflest börn eru byrjuð að drekka strax á fyrstu klukkustundinni eftir fæðinguna sem er mjög mikilvægt. Brjóstagjöf er talin styrkja tengsl móður og barns og fyrsta gjöfin oft upphafið að ævilöngu ástarsambandi.

Fyrsta næringin, broddmjólkin, er barninu afar mikilvæg og henni hefur verið líkt við fyrstu bólusetninguna. Magnið í fyrstu gjöfinni er ekki mikið, ein til tvær teskeiðar, en nóg fyrir barnið.

Móðurmjólkin er ótvírætt besta næring sem hægt er að bjóða nýfæddum börnum og hún hefur sérstaka eiginleika sem henta barninu á hverju aldursskeiði. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á kosti brjóstamjólkur sem fullkominnar næringar fyrir barnið a.m.k. fyrstu sex mánuðina og Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með áframhaldandi brjóstagjöf með næringarríkri fæðu í allt að tvö ár eða lengur.

Gleðilega brjóstagjafaviku.

Með kærri brjóstagjafakveðju,
Skipuleggjendur


Dagskráin 2009

Styrktaraðilar brjóstagjafavikunnar 2009

Skipuleggjendur 2009