Vikan formlega sett og ljósmyndasýning opnuð, mánudaginn 6. október kl.18:00

Alþjóðlega brjóstagjafavikan formlega sett og opnun ljósmyndasýningarinnar ,,Drekkutími”
eftir Guðrúnu Valdimarsdóttur áhugaljósmyndara á Kaffi Hljómalind.

Ljósmyndasýningin Drekkutími er sett upp í tilefni alþjóðlegu brjóstagjafavikunnar á Íslandi 6.-12.október. Sýningin er samstarfsverkefni Soffíu Bæringsdóttur, Aðalheiðar Atladóttur, Dagnýjar Óskar Ásgeirsdóttur og Guðrúnar Valdimarsdóttur en hún tók myndirnar og sá um vinnslu og uppsetningu sýningarinnar.

Á sýningunni eru alls um fjörtíu myndir af brjóstfæddum börnum. Átta myndir eru teknar í stúdíói í tilefni vikunnar en flestar myndir eru innsendar. Stúdíómyndir.

Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að vekja athygli á brjóstagjöf, vernda hana og styðja. Auk þess að beina sjónum að mikilvægi brjóstagjafar var ákveðið að minna á fegurð brjóstagjafar. Benda á að fegurðin býr í hversdagsleikanum og nándina sem myndast milli móður og barns.

Ljósmyndasýningin ,,drekkutími” er til að minna á hve einstakur tími brjóstagjafar er. Því um leið og brjóstagjöf er einstök og persónuleg er hún á sama tíma opin og snertir alla í samfélaginu.

Með ljósmyndasýningunni er brjóstagjöf sýnd eins og hún er frá degi til dags.

Til baka í Dagskrá 2008