Fjöldagjöf, föstudaginn 10. október kl.15:00

Reykjavík: Kaffitár í Borgartúni

Akureyri: Amtsbókasafninu

Ísafjörður: Kaffi Edinborg - kl.16:00

Í tilefni alþjóðlegu brjóstagjafavikunnar eru konur hvattar til þess að fjölmenna í fjöldagjöf. Markmiðið með fjöldagjöfinni er að hittast og gefa saman brjóst og vekja þannig athygli á mikilvægi brjóstagjafar. Margar mjólkandi mæður saman komnar á einn stað mynda stuðning hver við aðra. Yfirskrift brjóstagjafavikunnar í ár er einmitt stuðningur við móður. Fjöldagjöf gerir brjóstagjöf sýnilega og skemmtilegt andrúmsloft myndast þegar svo margar konur og börn þeirra eru saman komnar.

Við ætlum að koma saman og gefa börnum okkar brjóst á ofangreindum stöðum, jafnframt hvetjum við allar mjólkandi mæður til þess að vera með okkur og gera brjóstagjöf sýnilega.

Ef ekki gefst tækifæri til að mæta á ofangreinda staði er upplagt að setjast inn á næsta kaffihús og gefa brjóst og vera með.

Til baka í Dagskrá 2008