Brjóstagjafavikan 2011
Alþjóðlega brjóstagjafavikan verður haldin hátíðleg á Íslandi dagana 20. - 25. september 2011. Þetta er í fjórða sinn sem vikan er haldin formlega á Íslandi. Til þess að minna á mikilvægi brjóstagjafar verða ýmsar uppákomur alla vikuna.
Þemað í ár er „Sjáumst“ Hugmyndin bak við þetta er að leggja áherslu á mikilvægi þess að gera brjóstagjöf sýnilega og sjálfsagða hvar sem er og hvenær sem er í okkar samfélagi.
Nú er það þannig að í okkar samfélagi er brjóstagjöf talin sjálfsögð en hún er ekki alltaf sýnileg. Margar nýorðnar mæður hafa kannski aldrei séð barn á brjósti og hafa því ekki þessar eðlilegu fyrirmyndir. Brjóstagjöf á almannafæri er alveg sjálfsögð og ætti alltaf að vera það. Réttur barnsins til þess að fá sýna næringu þegar það þarf er sá sami og okkar hinna, við eigum ekki að þurfa að fara í felur. Það er líka mikilvægt að brjóstagjöf sjáist til þess að hún haldi áfram að vera venjuleg og eðlilegur hlutur af samfélaginu.
Sem betur fer er brjóstagjöf velkomin og sjálfsögð á mörgum almennum stöðum eins og kaffihúsum hér á Íslandi og það er góð þróun. Samt ekki allsstaðar, þess vegna þurfum við að gera enn betur! Það er engan veginn ásættanlegt að mæðrum með börn á brjósti skuli enn vera vísað með sína brjóstagjöf inn á almenningssalerni eða beðnar að yfirgefa staðinn.
Það er orðinn árviss viðburður í brjóstagjafavikunni að efna til fjöldagjafar á kaffihúsi og er þetta táknrænt fyrir vilja mæðra fyrir því að brjóstagjöf sé sjálfsögð á öllum kaffihúsum og veitingastöðum og almennt á almannafæri.
Verum umburðarlynd gagnvart börnum og fjölskyldufólki og gætum þess að lítil börn fái að nærast
þar sem þau eru þegar þau vilja á mannsæmandi stað.
Með kærri kveðju
Skipuleggjendur